Bøger i Ráðgátur Dee Dómara serien i rækkefølge
-
61,95 - 66,95 kr. Dee dómari, hinn frægi meistari í uppljóstrun glæpa, er nýtekinn við dómstólnum í borginni Poo-yang. Hans fyrsta verkefni er að hnýta lausa enda í hrottalegu morðmáli sem bíður úrskurðar. Hin unga Hreina Jaði hefur verið myrt á heimili sínu á Hálfmánastræti og bendir allt til þess að leynilegur elskhugi hennar hafi verið að verki. Inn í málið flækjast sögusagnir af kraftaverkum úr munkamusteri þar sem fjölmargar konur hafa orðið barnshafandi í nafni trúarinnar.Robert van Gulik (1910-1967) var hollenskur rithöfundur sem er best þekktur fyrir ævintýrin um Dee dómara. Sögupersónuna fékk hann að láni úr kínverskri skáldsögu frá 18. öld sem hann þýddi yfir á ensku og var hans fyrsta útgefna verk. Í kjölfarið skrifaði hann 17 bækur um Dee dómara sem komu út á árunum 1949-1968. Gulik var margt til lista lagt en ásamt ritstörfunum var hann austurlandafræðingur, diplómati og tónlistarmaður.
-
11,95 - 61,95 kr. Dagarnir hafa verið með rólegra móti hjá hinum háttvirta Dee dómara og varðliði hans síðan hann tók við dómaraembættinu í Pei-chow héraði. Þegar Yeh bræðurnir birtast óvænt í réttarsal hans verður þó breyting á, því að systir þeirra hefur verið myrt með grimmilegum hætti og morðingjann er hvergi að finna. Atvik þetta er þó einungis byrjunin á óhuggulegri og flókinni ráðgátu sem enginn annar en Dee dómari er megnugur að leysa.Bækurnar um ráðgátur Dee dómara eru byggðar á fornum glæpabókmenntum þar sem Dee leysir margslungin mál sem eiga mörg hver rætur sínar að rekja úr raunverulegum dómsmálum frá Kína.Robert van Gulik (1910-1967) var hollenskur rithöfundur sem er best þekktur fyrir ævintýrin um Dee dómara. Sögupersónuna fékk hann að láni úr kínverskri skáldsögu frá 18. öld sem hann þýddi yfir á ensku og var hans fyrsta útgefna verk. Í kjölfarið skrifaði hann 17 bækur um Dee dómara sem komu út á árunum 1949-1968. Gulik var margt til lista lagt en ásamt ritstörfunum var hann austurlandafræðingur, diplómati og tónlistarmaður.