De Aller-Bedste Bøger - over 12 mio. danske og engelske bøger
Levering: 1 - 2 hverdage

Nálarauga

Bag om Nálarauga

Fyrsta metsölubók Ken Follett er grípandi frásögn þar sem örlög seinni heimsstyrjaldar hvíla í höndum slyngs njósnara og hugrakkrar konu. Árið er 1944 og Henry Faber, þýskur njósnari í Bretlandi, kemst að áformum Breta um að ráðast inn í Normandí. Með því upphefst æsispennandi eltingarleikur, þar sem Faber ferðast í gegn um Bretland til að koma upplýsingunum áleiðis til þýskra yfirmanna sinna, með bresku leyniþjónustuna á hælunum. Hann kemst þó ekki langt, því hann verður skipreka á skoskri eyju, þar sem hann hittir konu sem breytir öllu sem hann hefur áður haft trú á og með því gangi sögunnar. Bókin var gerð að kvikmynd árið 1981, með Donald Sutherland í aðalhlutverki. Hún fékk bandarísku Edgar verðlaunin árið 1979 og er enn í dag ein vinsælasta bók Folletts. Ken Follett er breskur metsöluhöfundur. Af þeim 37 titlum sem hann hefur ritað hafa selst yfir 195 milljón eintök á 40 tungumálum í fleiri en 80 löndum. Hann fæddist í Cardiff í Wales árið 1949 og lærði heimspeki á sínum yngri árum áður en hann fór að starfa sem blaðamaður. Árið 1978 skaust hann upp á stjörnuhimininn með bók sinni Nálarauga (Eye of the Needle). Hann hefur ritað mikið af sögulegum skáldsögum, en ein sú vinsælasta er bókin Pillars of the Earth, sem var gerð að sjónvarpsþáttaröð árið 2010. Ken dáir tónlist næstum jafn mikið og bækur og spilar gjarnan á bassagítar. Hann býr í Herefordshire í Englandi með konu sinni Barböru, en þau eiga saman fimm börn, sex barnabörn og þrjá labradora. Hann er virkur í ýmiss konar góðgerðastarfsemi og var formaður Dyslexia Action í áratug.

Vis mere
  • Sprog:
  • Ukendt
  • ISBN:
  • 9788727151298
  • Udgivet:
  • 30. august 2024
  • Straks på e-mail.

Normalpris

Abonnementspris

- Rabat på køb af fysiske bøger
- 1 valgfrit digitalt ugeblad
- 20 timers lytning og læsning
- Adgang til 70.000+ titler
- Ingen binding

Abonnementet koster 75 kr./md.
Ingen binding og kan opsiges når som helst.

Beskrivelse af Nálarauga

Fyrsta metsölubók Ken Follett er grípandi frásögn þar sem örlög seinni heimsstyrjaldar hvíla í höndum slyngs njósnara og hugrakkrar konu.
Árið er 1944 og Henry Faber, þýskur njósnari í Bretlandi, kemst að áformum Breta um að ráðast inn í Normandí. Með því upphefst æsispennandi eltingarleikur, þar sem Faber ferðast í gegn um Bretland til að koma upplýsingunum áleiðis til þýskra yfirmanna sinna, með bresku leyniþjónustuna á hælunum. Hann kemst þó ekki langt, því hann verður skipreka á skoskri eyju, þar sem hann hittir konu sem breytir öllu sem hann hefur áður haft trú á og með því gangi sögunnar.
Bókin var gerð að kvikmynd árið 1981, með Donald Sutherland í aðalhlutverki. Hún fékk bandarísku Edgar verðlaunin árið 1979 og er enn í dag ein vinsælasta bók Folletts.
Ken Follett er breskur metsöluhöfundur. Af þeim 37 titlum sem hann hefur ritað hafa selst yfir 195 milljón eintök á 40 tungumálum í fleiri en 80 löndum. Hann fæddist í Cardiff í Wales árið 1949 og lærði heimspeki á sínum yngri árum áður en hann fór að starfa sem blaðamaður. Árið 1978 skaust hann upp á stjörnuhimininn með bók sinni Nálarauga (Eye of the Needle). Hann hefur ritað mikið af sögulegum skáldsögum, en ein sú vinsælasta er bókin Pillars of the Earth, sem var gerð að sjónvarpsþáttaröð árið 2010. Ken dáir tónlist næstum jafn mikið og bækur og spilar gjarnan á bassagítar. Hann býr í Herefordshire í Englandi með konu sinni Barböru, en þau eiga saman fimm börn, sex barnabörn og þrjá labradora. Hann er virkur í ýmiss konar góðgerðastarfsemi og var formaður Dyslexia Action í áratug.

Brugerbedømmelser af Nálarauga



Find lignende bøger
Bogen Nálarauga findes i følgende kategorier: